Þann 15 mars 2010 var sett upp síða bogaveidi.123.is og var henni ætlað að fjalla og fræða fólk um bogveiði og seinna meir vera grundvöllur fyrir að stofnað yrði hagsmunafélag bogveiðifólks. Eftir að hún var sett upp þá hafa fjölmargir haft samband og viljað fræðast um bogveiði en einnig bogfimi en það að stunda bogfimi hverskonar mark, field og 3-D af miklu kappi er ein aðalforsenda að viðkomandi geti veitt með boga þar sem að hittnin verður að vera í lagi.
Bogveiðifélag Íslands var stofnað 13 Nóvember 2010 af aðilum sem hafa áhuga á bogveiði og er félagið ætlað að vera hagsmunasamtök bogveiðifólks og áhugafólk um bogveiðar.
Bogveiðifélag Íslands er aðili að Bogveiðisambandi Evrópu og er í samstarfi við norrænu bogveiðifélögin.
-
- Re: Hvar er best að kaupa boga?
- In Til sölu/Óska eftir
- 2 weeks ago
-
- Hvar er best að kaupa boga?
- In Til sölu/Óska eftir
- 3 weeks, 1 day ago