Nú er komið fram til umsagnar drög að vopnalögum varðandi bogaeign Það sem drögin segja um bogaeign að þá ekki litið til nágrannaþjóða okkar i þessum efnum. En samkvæmt nágranna þjóðum okkar að þá gilda engar reglur um boga og ör og skiptir ekki máli í hvað búnaðurinn er notaður í allt undir sama. Eins og drögin hljóma að þá er lagt til að með boga 7kg og léttari þurfi ekki leyfi en öflugri boga þurfi samþykkis lögreglustjóra. En manni skyldist á sýnum tíma þegar endurskoðunin fór fram að þá var hugmyndin með þessum lögum að samræma lögin hér á landi við nágranna þjóðirnar og laga vankanta á núgildandi lögum sem hafa komið upp. Júní 2010 var sent inn til Dómsmálaráðuneytis sem hét það þá tillögur frá þeim aðilum sem stunda bogfimi í hvaða formi sem hún er. En það virðist ekkert hafa verið tekið mark á þeim að mestu leiti.
Síðan 1998 þegar nú gildandi lög tóku gildi að þá hefur iðkendum bogfimi hverskonar ekki fjölgað að ráði hér á landi og í raun fækkað. Þrátt fyrir að haldin hafa verið bogfiminámskeið þar sem farið er yfir öryggi ofl, en nokkur hundruð manns hafa sótt þessi námskeið. Ástæðun telja menn vera frekar stíf lögi en líka að lögin gera það ómögulegt að hægt sé a versla með boga/ örvar hér á landi, einstaklingar þurfa að flytja það allt inn sjálfir.
Í Evrópu þá er bogfimi með vinsælustu fjölskyldu skemmtunum vinsælli en fótbólti en það hlýtur að segja manni eitthvað hversu útbreytt þetta áhugamál er. Það er mikið um að klúbba, félög og fyrirtæki fari í óvissuferðir í klúbbanna þar sem farið er í bogfimi hverskonar. Ein vinsælasta formið af bogfimi er field og 3-D.
Vil ég því hvetja alla sem áhuga hafa að styðja við bakið á þeim hagsmunaaðilum sem vilja fá þessu breytt í samræmi við nágrannaþjóðirnar.
Endilega segið ykkar skoðun og látum í okkur heyrast.
Indriði R. Grétarsson